Álafossull er á við gull!
Álafoss var stofnað 1896 og átti Björn Þorláksson frumkvæði af byggingu verksmiðjunnar. Hann sá hvað kvosin var hentugur staður með Álafossinn og brekkuna frá honum til að knýja vélarnar og Varmá ylvolga og mjög hentuga til ullarþvotts.
Björn stíflaði Varmá fyrir ofan Álafoss og leiddi svert rör fyrir vatnið niður brekkuna í verksmiðjuhúsið til að knýja vélarnar. Árið 1917 eignast Sigurjón Pétursson hlut í Álafoss og jók hann umsvifin meir en áður hafði þekkst í ullariðnaði á Íslandi. Eitt af kjörorðum Sigurjóns var Álafossföt bezt.
Starfsmenn Álafossverksmiðjunnar bjuggu flestir á staðnum og var rekið meðal annars blómlegt félagslíf með dansleikjum og leiksýningum, það má ennþá sjá áhorfendastæðin sem útbúin voru í brekkunni fyrir ofan gömlu sundlaugina árið 1929.
Íþróttir og sund voru í hávegum höfð hjá sigurjóni og árið 1921 gekkst hann fyrir fyrsta Álafoss hlaupinu og hlaupið var frá álafossi til gamla Melavallarinns í vesturbæ Reykjavíkur þar sem Kristján X konungur Íslands og Danmerkur afhenti verðlaunin. Sigurjón var líka fljótur að sjá hvaða möguleikar fólust í Varmánni ylvolgri og þar sem Varmá hafði verið stífluð þá myndaðist stórt uppistöðulón sem var tilvalið til sundkennslu og dýfinga. Íþróttaskóli var starfræktur að Álafossi frá árinu 1928 fyrir börn og unglinga og var hann starfandi fram til 1940. Árið 1933 var ný innisundlaug tekin í notkun að Álafossi og var hún notuð í u.þ.b. 30 ár við kennslu í skólasundi eða þar til Varmárlaugin var vígð árið 1964, núna er gamla sundlaugin notuð sem upptökustudíó af hljómsveitinni Sigurrós.
Álafossull er á við gull var eitt af vígorðum verksmiðjunnar þegar allt gekk sem best og árið 1983 störfuðu 420 manns við Álafoss verksmiðjuna.
Álafoss verksmiðjusala flutti verslun sína á gamla verksmiðjuhúsið í Álafosskvosinni árið 1997 og þar er að finna marga gamla muni og myndir allt frá árinu 1897. Við bjóðum alla velkomna til okkar og vonumst til að flestir sjái sér fært um að njóta þessa sérstæða umhverfis sem Álafosskvosin, Álafoss verslunin og listamennirnir hafa uppá að bjóða.