Þóra Sigurþórsdóttir
Þóra Sigurþórsdóttir fædd 1958. Hún lauk prófi úr keramikdeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1989. Þóra hefur haldið fjölmargar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum bæði hér á landi og erlendis. Hún er búsett í Mosfellsbæ og starfrækir vinnustofu að Hvirfli í Mosfellsdal.